Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar 2024 – Multicultural Assembly Reykjavík City

Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar 2024 – Multicultural Assembly Reykjavík City

W.O.M.E.N. will be at the Fjölmenningarþing (Multicultural Assembly) by Reykjavík City this Saturday with a panel in English organised and moderated by our Vice-Chair Mouna Nasr.
Ekkert um okkur án okkar / Nothing about us without us.
14:15-15:00
-Mouna Nasr – Vice-Chair W.O.M.E.N 2024
-Barbara Jean Kristvinsson, counsellor on immigrant issues, former board member of W.O.M.E.N.
-Sabine Leskopf – city counsellor, former board member of W.O.M.E.N.
-Sonja Ýr Þorbergsdóttir Chair of BSRB, federation of public worker union in Iceland
-Mahdya Malik, university student and advocate for Muslim women in Iceland.

W.O.M.E.N. in Iceland invite you to a panel made up of women from diverse levels of society, the majority of whom are of foreign origin themselves. They have done powerful work to increase the participation and empowerment of women of foreign origin. The panel aims to examine the status, challenges and opportunities of women of foreign origin in their local community, and the audience will be encouraged to ask questions to the panel.

Full programme: https://reykjavik.is/fjolmenningarthing-reykjavikurborgar-2024

Á Fjölmenningarþingi skapast einstakt andrúmsloft fyrir fólk af öllum uppruna til að miðla og skapa þekkingu sín á milli, eiga lífleg samskipti og góðan dag saman. Leiðarljós þingsins eru samskipti, lýðræði og viðhorf.
Þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna.
Sjónum verður beint að ýmsum málefnum sem eru í brennidepli svo sem tungumálum, bókmenntum, inngildingu og í fyrsta sinn verður málstofa sem er sérstaklega ætluð ungu fólki af erlendum uppruna og upplifunum þeirra í samfélaginu.
Mikilvægt er að skrá sig á málstofurnar: https://reykjavik.is/fjolmenningarthing-reykjavikurborgar…
10:00 Setning
10:05-11:00 Kynning á fjölbreyttum verkefnum úr fjölmenningarborginni Reykjavík.
11:30-12:15 – Málstofur
Fjölmenningarfærni – sitjum við öll við sama borð?
Örnámskeið í fjölmenningarfærni. Ert þú fjölmenningarfær?
Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu?
Eliza Reid, forsetafrú, stýrir málstofu þar sem Hallgrímur Helgason, Veronika Egyed og Luciano Dutra ræða mikilvægi þýðinga á bókmenntum.
Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi?
Birna Imsland fjallar um stækkandi hóp þjóðfélagsþegna sem þurfa samfélagstúlkun, hvað er vel gert og hvað má bæta í faginu
12:15-12:45 Hádegishlé. Léttar veitingar frá Á Bístró
12:45-13:30 – Málstofur
Opið, öruggt og kurteist samtal – spjall um fjölbreytileika og valdeflingu. Fyrir ungmenni af erlendum uppruna á aldrinum 13-16 ára.
Íslenska töluð með hreim – hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi?
Stefanie Bade fjallar um að tala íslensku með hreim, hvernig hreimurinn tengist sjálfsmynd fólks og fleira
„Farðu bara heim til þín“ samtal um menningarfordóma
Sema Erla Serdaroglu ræðir um menningarfordóma í alþjóðlegu og íslensku samhengi
13:30-14:00 Kaffihlé
14:15-15:00 – Pallborð
Ekkert um okkur án okkar – Konur af erlendum uppruna í opinberri umræðu. W.O.M.E.N bjóða til pallborðs sem skipað er konum frá fjölbreyttum stigum samfélagsins. Þær munu skoða stöðu, áskoranir og tækifæri kvenna og taka við spurningum úr sal.
Menningarsendiherrar
Komdu að hitta menningarsendiherra. Mirabela Blag mun kynna störf þeirra og þær fjölmörgu áskoranir þau hafa tekist á við.
15:00 – Lokaatriði
Listamaðurinn Andervel flytur nokkur lög í lok þingsins.

Date

maí 04 2024
Expired!

Time

2:15 pm - 3:00 pm

Location

Hitt Húsið
Rafstöðvarvegur 7, 110 Reykjavík
Category