Sagan Okkar

2007
Kynþáttahatur sagt vaxandi vandamál – Tatjana Latinovic
Kynþáttahatur sagt vaxandi vandamál – Tatjana Latinovic

Fréttablaðið – 90. tölublað (01.04.2007)

2006
Brottvísun erlendra kvenna gagnrýnd – Sabine Leskopf
Brottvísun erlendra kvenna gagnrýnd – Sabine Leskopf

Samtök kvenna af erlendum uppruna gagnrýna harkalega stjórnsýslu og segja að brottvísanir fráskildra kvenna af erlendum uppruna auðveldi íslenskum eiginmönnum að kúga erlendar konur sínar til hlýðni Fréttablaðið – 225. tölublað (23.08.2006)

2005
Stjórn 2005
Stjórn 2005

Tatjana Latinovic, formaður, Amal Tamimi, varaformaður, Sabine Leskopf, ritari, Grazyna Okuniewska, gjaldkeri.

2004
Eru innflytjendur annars flokks Íslendingar?
Eru innflytjendur annars flokks Íslendingar?

Morgunblaðið – 104. tölublað (17.04.2004

Vinnuálag og lág laun standa í vegi – Málstofa – Anh-Dao Tran
Vinnuálag og lág laun standa í vegi – Málstofa – Anh-Dao Tran

Fréttablaðið – 77. tölublað (18.03.2004) Vinnuálag og lág laun standa í vegi MÁLSTOFA Fólk af erlendum uppruna sem kemur til að setjast að hér á landi hefur mikinn áhuga á að læra íslensku. Þetta kom fram á málstofu sem samtök kvenna af erlendum uppruna stóðu fyrir. Á málstofunni var einnig talað um margt annað sem stendur í vegi fyrir því að sá vilji fólksins geti náð fram að ganga. Mikið vinnuálag er á þessu fólki og dýrt nám sé því ekki inn í myndinni. „Það vantar einnig betri námsgögn eins og t.d. orðabækur,“ segir Anh-Dao Tran, formaður samtaka kvenna af erlendum uppruna.

W.O.M.E.N. in Iceland : rætt við Anh-Dao Tran formann Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
W.O.M.E.N. in Iceland : rætt við Anh-Dao Tran formann Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.

Bára Magnúsdóttir 1965- höfundur; Anh Dao Katrín Trân 1959- 2004 Vera : tímarit um konur og kvenfrelsi / 2004; 23 (1): bls. 24-25

2003
W.O.M.E.N. samtök kvenna af erlendum uppruna is founded
W.O.M.E.N. samtök kvenna af erlendum uppruna is founded

On Women’s Rights Day 24th of October 2003 The founding members are: Anh-Dao Tran, formaður Tatjana Latinovic, varaformaður Amal Tamimi Dragana Zastavnikovic Annalou Perez. Speech by first Chairwoman Anh-Dao Tran: Frú Vigdís Finnbogadóttir, góðir félagar/fundarmenn Ég vil fyrir hönd nýrrar stjórnar þakka ykkur fyrir þann heiður sem þið hafið sýnt okkur með því að treysta okkur fyrir að stýra nýjum samtökum. Nafn samtakanna er Samtök kvenna af erlendum uppruna. Nafnið vísar til þess að við eigum allar, sem eigum rætur í ólíkum heimhlutum, hlut í félaginu. Samtökunum er ætlað að flytja rödd okkar, túlka hagsmuni okkar og áhugamál, verja jafnrétti okkur sem kvenna og sem innflytjenda í íslensku samfélagi. Nefndin sem undirbúið hefur þessa félagsstofnun hefur reynt að ná sambandi við eins margar konur af erlendum uppruna eins og okkur hefur verið unnt til að bjóða þeim til stofnfundarins. Við vitum samt sem áður að margar hafa enn ekki frétt af stofnun samtakanna. Stjórnarmaður okkar, Annalou Perez, sem býr á Dalvík, mun njóta aðstoðar nágranna síns, Roxanne Morales á Akureyri, til að ná tengslum við konur í Eyjafirði. Dragana Zastavnikovic, fulltrúi okkar á Vestfjörðum, mun leiða þetta starf fyrir vestan, og það sama mun Amal Tamini gera hér á höfuðborgar­svæðinu. Markmið okkar á næstunni er að virkja konur af erlendum uppruna í öðrum landshlutum um leið og við höfum mannafla og fjárhagslegan styrk til þess. Okkar bíða mörg verkefni. Margar okkar starfa utan sérfræðisviða okkar. Margar erum við að berjast við að læra íslensku, og vera í fullri vinnu á sama tíma. Margar erum við að styðja við fjölskyldur okkar, hjálpa þeim að fóta sig á ýmsum sviðum nýs lífs, laga menningarlegan, menntunarlegan, starfslegan og tilfinningalegan bakgrunn okkar—allan pakkann—að nýjum aðstæðum. Margar okkar eru einangraðar. Nýkjörin stjórn verður ábyrg fyrir að hlusta á félagskonur, tala máli þeirra og eiga fyrir þeirra hönd samvinnu við önnur samtök, stofnanir og opinbera aðila, við að vinna áhugamálum þeirra og hagsmunum framgang. Ég vil endurtaka þakkir fyrir traust ykkar. Við óskum félagskonum þessara nýju samtaka alls hins besta í góðum félagsskap, samhug og samstöðu.   Takk fyrir. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2003/10/25/samtok_kvenna_af_erlendum_uppruna_stofnud/