Söguhringur kvenna | Ég elska Reykjavík

Söguhringur kvenna | Ég elska Reykjavík

*(English below)

Ég ♥(elska) Reykjavík – menningarganga um miðbæinn fyrir konur
Borgarbókasafnið | Menningarhús Grófinni
Sunnudagur 4. nóvember kl. 13:30-15:30

Langar þig að upplifa miðborg Reykjavíkur upp á nýtt? Sviðslistakonan Aude Busson og Söguhringur kvenna býður konum á öllum aldri og af öllum gerðum í einstaka og skemmtilega gönguferð þar sem við fetum í fótspor kvenna í miðbænum. Við læðumst inn um bakdyr, syngjum fyrir okkur sjálfar og látum sögur, raddir og óskir kvenna í Reykjavík, í fortíð og nútíð, bergmála um borgina.

Allar konur velkomnar. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram með því að senda póst á info@womeniniceland.is. Hámarksfjöldi þátttakenda er 30 og því um að gera að skrá sig tímanlega eða í síðasta lagi fimmtudaginn 1. nóvember.

Aude fer með okkur á forvitnilega staði og búast má við óvæntum uppákomum á leiðinni. Sagan segir okkur að áhrif kvenna eru margvísleg og við veltum aðeins fyrir okkur hvernig við getum sjálfar lagt okkar af mörkum.

Aude Busson útskrifaðist frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands 2011. Siðan þá hefur hún unnið við leikstjórn í samvinnu við aðra, kennslu og viðburðastjórnun. Hún lék og var listrænn stjórnandi göngusýningarinnar Ég elska Reykjavík fyrir fjölskyldur á árinu 2014 og var sýningin tilnefnd til Grímuverðlaunanna. Hún hefur líka leitt marga sviðslistavinnustofur fyrir áhugamenn, meðal annars fyrir Söguhring kvenna.

Gangan tekur um klukkutíma og boðið verður upp á kaffi í lokin. Konur eru hvattar til að mæta í þægilegum og hlýum fötum – sem fara vel við íslenskt veðurfar.

Þátttaka er ókeypis.

Söguhringur kvenna er vettvangur fyrir konur til að hittast, kynnast og tengjast. Listræn sköpun er notuð sem tjáningarform í hringnum en einnig er boðið er upp á ýmis konar fræðslu um menninguna og samfélagið sem við búum í. Hringurinn hefur verið starfandi í 10 ár og öllum konum er velkomið að taka þátt.

Í haust verður dagskráin einstaklega fjölbreytt, meðal annars verður boðið upp á leshring, leiklistar- og tónlistarsmiðjur. Söguhringur kvenna er samvinnuverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og W.O.M.E.N., Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Dagskrá haustsins 2018 er styrkt af velferðarráðuneytinu.

Sjá nánar hér http://www.borgarbokasafn.is/is/content/s%C3%B6guhringur-kvenna

Starfið er hluti af innleiðingu stefnu menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar um fjölbreytta menningu í borginni 2017-2020 „Rætur og vængir”.

===================================================

I♥ love Reykjavik – Cultural oriented guided tour through downtown Reykjavik for women
Borgarbókasafnið | Menningarhús Grófinni
Sunday November 4th from 13:30-15:30

Would you like to see Reykjavik in a new light?

Stage artist Aude Busson and The Women‘s Story Circle invite women of all ages to join us for a lively and specialized Women‘s walk through town. We will walk in the steps of women through the city center. Sneaking through back doors, singing for ourselves while letting stories, voices and the wishes of the women of Reykjavík echo throughout the city.

All women, of all origins, are welcome to join. It is necessary that you sign up advance by sending and email to us at info@womeniniceland.is We can only allow ourselves 30 participants, so first come first serve. Best to sign up right away and reserve your spot! Last chance to sign up will be Thursday November 1st.

Aude will take us to and through intriguing places and you can expect unexpected events to occur and our way! History tells us that the influence women have had is diverse and we will reflect a bit about how we too can do the same.

Aude Busson graduated from stage design faculty at Listaháskóla Íslands 2011. Since then she has worked with directing in collaboration with others, teaching and event management. She acted in and was the artistic director for the staged guided tour “I love Reykjavik for Families” in 2014, which was nominated for the coveted Gríma award. She has also led many acting workshops for enthusiasts including for us at Söguhring Kvenna.

The tour will take approximately an hour and we will finish up with coffee and comradery at the end. Women are encouraged to wear comfortable and warm attire (clothes which suit the never too predictable Icelandic weather!)

Participation is free of charge.

The Women’s Story Circle is a platform for women to come together, get to know each other and make new connections. Art and creativity are used as a method to communicate and express ourselves in our circle. We also provide information and educational samples regarding culture and the society within which we live. Our circle has been active for 10 years and all women are welcomt to participate.

This fall we have scheduled a diverse program. We will invite you to take part in the womens circle, acting, creative writing, and musical workshops. The Story Circle is a collaborative project between Borgarbókasafn Reykjavik and W.O.M.E.N. of foreign origin living in Iceland. The Icelandic Ministry of Welfare has suppported our 2018 Fall programs through a grant.

See more information here: http://borgarbokasafn.is/en/content/womens-story-circle

Date

nóv 04 2018
Expired!

Time

1:30 pm - 3:30 pm