girl reading a newspaper

2021

Nine Women Sue Icelandic State for Dropping Sexual Assault Cases

Nine women have sued the Icelandic state before the European Court of Human Rights for violating their right to a fair trial. The women are all survivors of rape, domestic violence, and/or sexual harassment who reported the crimes to the police, only for the cases to be dropped by prosecutors.

Níu konur kæra íslenska ríkið – Vísir

Af þessu tilefni hafa þrettán kvenna- og jafnréttissamtök á Íslandi boðað til blaðamannafundar nú fyrir hádegi. Gerir kvennahreyfingin kröfur um um úrbætur í réttarkerfinu fyrir brotaþola kynbundins ofbeldis. Í tilkynningu frá Stígamótum segir að tölur gefi til kynna að 70 til 85 prósent þeirra mála þar sem konur tilkynna ofbeldi til lögreglu séu felld niður á leið sinni í gegnum réttarkerfið áður en þau komast í dómsal.

Níu konur kæra íslenska ríkið til MDE

Níu konur hafa lagt fram kærur til Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) á hendur íslenska ríkinu. Konurnar höfðu allar áður kært kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða kynbundna áreitni til lögreglu en mál þeirra voru felld niður eftir rannsókn lögreglu og var sú ákvörðun staðfest af ríkissaksóknara.

2020

Konur af erlendum uppruna vilja að borgin skoði mál Fjölskylduhjálpar – Vísir

Ef það komi í ljósi að fólki sé mismunað hjá samtökunum vegna uppruna síns hvetja konurnar borgina til þess að hætta öllum fjárstuðningi við Fjölskylduhjálp. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá W.O.M.E.N. Yfirlýsingin kemur í kjölfar fréttaflutnings fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fyrr í vikunni um Ásgerði Jónu Flosadóttur, formann Fjölskylduhjálpar, og ásakanir á hendur henni um mismunun og virðingarleysi í garð skjólstæðinga góðgerðarsamtkanna.

Kyn­bundið of­beldi – Staða er­lendra kvenna á Ís­landi – Vísir

16 dagar af kynbundnu ofbeldi eru tilteknir dagar ársins sem eru tileinkaðir vitundarvakningu innan hvers samfélagshóps. Heimilisofbeldi á rætur sínar í valdaójafnvægi. Það geta allir orðið fyrir heimilisofbeldi, óháð kyni, hættan liggur í því að vera háður öðrum, hvort sem er um fjárhagslegt hæði eða tilfinningalegt hæði að ræða.

Kynja­jafn­rétti mun aldrei nást fyrr en kyn­bundið of­beldi verður upp­rætt – Vísir

Kynjajafnrétti er lykil atriði í barráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Kynjakerfi sem byggist á alda gömlu samfélags- og lagakerfi er grunvöllur fyrir samskipti kynjanna, en nútíma samfélag kallar eftir breytingum sem er meira í takt við nútíma skilning á réttlæti og mannréttindum.

Kjarninn

Kjarninn er íslenskur fréttaskýrandi með áherslu á staðreyndir. Stjórnmál, efnahagsmál, viðskipti, skoðanaskrif og allt annað sem vekur áhuga kemur Kjarnanum við.

Fyrirlesarar

Bjarni Herrera Þórisson er framkvæmdastjóri CIRCULAR Solutions, sjálfbærniráðgjafar sem hefur verið leiðandi á Íslandi og m.a. hjálpað að tengja fjármálamarkaði og loftslagsbreytingar. Hann er með grunnpróf í lögfræði og MBA gráðu frá Austur Asíu. Hann hefur starfað í fjármálageiranum á Íslandi til sjö ára og bjó í fjögur ár í Asíu (m.a.

Vinna meira og fá lægri laun

Vinnudagur kvenna af erlendum uppruna er lengri en gengur og gerist meðal kvenna á Íslandi. Auk þess er vinnutími þeirra óreglulegri sem getur hamlað þátttöku í margs konar viðburðum, íslenskunámi og aðgangi að íslensku málsamfélagi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu, Staða kvenna af erlendum uppruna – Hvar kreppir að?


2019

Í skotgröfum vinnumarkaðarins

Kynbundið ofbeldi á vinnustað er veruleiki sem margar konur hafa þurft að glíma við, daglega. Þær verða fyrir alls kyns ofbeldi; munnlegu, líkamlegu og andlegu. Á meðan grafið er undan og brotið á þeim er enn búist við því að þær konur vinni vinnuna sína vel án þess að kvarta.

Segir Landspítalann ýta undir neikvæða staðalímynd af konum af erlendum uppruna – Vísir

Nichole Leigh Mosty, verkefnisstjóri hjá Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og fyrrverandi þingmaður, gagnrýnir Landspítalann fyrir myndbirtingar með auglýsingum sínum um störf á Landspítalann. Með auglýsingu fyrir starf hjúkunarfræðings er birt mynd af íslenskum konum en fyrir starf í mötuneyti mynd af konu dökkri á hörund.

Hennar rödd – pallborðsumræður með konum af erlendum uppruna

Úlfhildur Jóna Þórarinsdóttir Þér er boðið á viðburðinn Hennar rödd – pallborðsumræður með konum af erlendum uppruna, en viðburðurinn er haldinn í tilefni alþjóðlega kvennadagsins í Gym & Tonic salnum á Kex Hostel. Konur af erlendum uppruna er sívaxandi hópur á Íslandi vegna fjölda ástæðna.

Glerþakið er lægra fyrir erlendar konur

Nýr formaður Kvenréttindafélags Íslands, Tatjana Latinovic, er með fleiri járn í eldinum en velflestir aðrir. Auk þess að stýra hinu rótgróna félagi sem Bríet Bjarnhéðinsdóttir og fleiri kjarnakonur stofnuðu fyrir 112 árum er Tatiana yfirmaður hugverkasviðs Össurar, situr í Innflytjendaráði og hvílir hugann með því að þýða íslenskar bókmennir yfir á serbnesku og króatísku.

Icelandic Women’s Rights Association Elects First Chairperson of Foreign Origin

The Icelandic Women’s Rights Association elected its first chairperson of foreign origin since its founding in 1907. Kjarninn reports new chairperson Tatjana Latinovic has been an activist and advocate for the rights of women and immigrants since moving to Iceland in 1994. Tatjana has been on the board of the association and acted as vice-chair […]

Sam­tök­in ekki stefn­u­mót­a­þjón­ust­a: „Vild­i bara feit­a konu”

Sam­tökum kvenna af er­lendum upp­runa á Íslandi berast nokkrum sinnum á mánuði tölvu­póstar frá er­lendum karl­mönnum sem halda að um ein­hvers­konar stefnu­móta­síðu eða fylgdar­þjónustu sé að ræða. Þetta stað­festir Angeliqu­e Kell­ey, for­maður stjórnar fé­lagsins í sam­tali við Frétta­blaðið. Sam­tökin ljá konum af er­lendum upp­runa á Ís­landi rödd og vinna meðal annars að því að upp­ræta staðal­myndir um er­lendar konur á vinnu­markaðnum.


2018

Upplýsingar eru valdefling

Það er ekki oft sem að umræða íslenskra fjöl­miðla bein­ist að konum af erlendum upp­runa. Und­an­farnar vikur hafa fyr­ir­sagnir frétt­anna verið hræði­legar og þeim hafa fylgt óhugn­an­legar sögur af kyn­ferð­is­legri mis­notkun og heim­il­is­of­beldi sem konur af erlendum upp­runa hafa þurft að þola á Íslandi af hálfu ókunn­u­gra, maka og yfir­manna, sumir hverjir hafa verið íslenskir en aðrir ekki.

Ofbeldið gegn erlendu konunum annars eðlis – Vísir

„Allar konur geta lent í ofbeldi, en eðli þess er annað, þegar um er að ræða konur af erlendum uppruna. Kona sem kemur frá öðru landi er berskjölduð, með engan stuðning. Það er kannski engin fjölskylda og enginn skilningur á hennar stöðu. Svo er hún einangruð og er sagt að þegja ef hún kvartar.

Gengu gegn kyn­þátta­for­dómum

Stór hópur gekk síðdegis í dag frá Hallgrímskirkju á Austurvöll í tilefni þess að í dag er er alþjóðlegur dagur gegn mismun og kynþáttafordómum. Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi stóðu fyrir göngunni en í viðburði fyrir göngunni stendur meðal annars að vitundarvakning sé þörf varðandi stöðu kvenna af erlendum uppruna hér á landi.

Samtök kvenna af erlendum uppruna hljóta Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar – Vísir

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hljóta Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar árið 2018. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í höfða í dag, á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar. Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa.

Konur af erlendum uppruna hljóta Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri afhenti í dag Sam­tökum kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi Mann­rétt­inda­verð­laun Reykja­vík­ur­borgar 2018 á mann­rétt­inda­degi Reykja­vík­ur­borg­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg. Nichole Leigh Mosty einn for­svars­manna hóps­ins segir í sam­tali við Kjarn­ann að þær séu auð­mjúkar og þakk­látar fyrir þessi verð­laun.

Mind the gap // Brúum bilið

Ungar athafnakonur í samstarfi við ., Samtök kvenna af erlendum uppruna, héldu vinnustofu 25. apríl sl. að fyrirmynd Barbershop verkfærakistu UN Women. Við leituðum leiða fyrir konur af fjölbreyttum uppruna til að brúa bilið milli ólíkra menningarheima og byggja þannig upp sterkara samfélag.

Hótað að börnin verði tekin af þeim og þær svo sendar úr landi – Vísir

Formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna telur að konurnar þori oft ekki að flýja aðstæður þar sem þær verða fyrir áreitni eða ofbeldi, af ótta við hvaða afleiðingar það hafi. „Þessar sögur komu mér ekki á óvart. Ég er búin að heyra þær í mörg ár í vinnu minni með W.O.M.E.N.

Konur af erlendum uppruna rjúfa þögnina: Sumum þolendum markvisst haldið í viðkvæmri stöðu – Vísir

Í umræðuhóp kvenna af erlendum uppruna á Facebook hafa 660 konur rætt sín á milli um kynferðisofbeldi, fordóma og útilokun. 97 þeirra hafa undirritað yfirlýsingu sem birtist á Kjarnanum í morgun. Meðfram yfirlýsingunni er áskorun til samfélagsins og 34 reynslusögur.

From Iceland – #MeToo: Foreign Women in Iceland Unite!

After the #MeToo movement progressively unveiled the systematic abuse of women at all levels of Icelandic society, it was only a matter of time before foreign women living in Iceland also began to share their experiences.

Hópur íslenskra karlmanna beinir spjótum sínum að konum af erlendum uppruna – Vísir

Tónlistarkonan Jelena Ćirić starfar sem blaðamaður hjá Iceland Review og hefur verið búsett hér á landi í eitt og hálft ár. Jelena flutti til Íslands með eiginmanni sínum Snorra Hallgrímssyni, en þau kynntust í tónlistarnámi á Spáni. „Eftir námið fékk ég vinnu í Mexíkó, hann fékk verkefni á Íslandi en þegar það var búið kom hann þangað.

Kvennafrí og konur af erlendum uppruna – Vísir

Miðvikudaginn 24. október eru konur hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 og fylkja liði á samstöðufund á Arnarhóli, undir kjörorðinu: „Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!” Nú á árinu höfum við í Samtökum kvenna af erlendum uppruna tekið höndum saman og viljum við láta í okkur heyra í jafnréttisbaráttunni.

Gerum við nóg?

Ég er búin að vera í þessum mála­flokki svo lengi, ég hélt ég vissi þetta allt.

#Metoo: Konur af erlendum uppruna stíga fram

Þær velta fyrir sér hvort það sé vegna þess að þær séu hafðar út undan eða hvort að þær kjósi sjálfar að standa hjá. Mik­il­vægt sé að leita svara við þessum spurn­ingum og skilja af hverju það þurfi að svara þeim. „Frá­sagnir kvenna af erlendum upp­runa eru ofnar úr for­dóm­um, mis­mun­un, mark­vissu nið­ur­broti, van­rækslu, úti­lokun og mis­notk­un.


2017

Sjálfsvarnarnámskeið til styrktar konum

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi (W.O.M.E.N) halda í kvöld sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur á öllum aldri og uppruna. Er þetta í fyrsta sinn semþau halda slíkt námskeiðið, en samtökin standa fyrir svokölluðu Þjóðlegu eldhúsi fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði á tímabilinu september til júní.

„Ekkert um okkur án okkar” – Þingið verði að endurspegla þjóðina

Sam­tök kvenna af erlendum upp­runa harma að hlut­fall kvenna á þing­inu hafi minnk­að. „Við hvetjum stjórn­mála­flokka að gefa fleiri konum tæki­færi, og að raða þeim í efsta sæti á listum þeirra t.d. í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um,” segir í ályktun sam­tak­anna um nið­ur­stöður kosn­ing­anna sem þau sendu frá sér í gær.

Kynbundið ofbeldi gagnvart konum af erlendum uppruna – Vísir

Edythe L. Mangindin skrifar Kynbundið ofbeldi tekur á sig mismunandi form, meðal annars líkamlegt, kynferðislegt, sálfræðilegt eða andlegt ofbeldi. Ástæðurnar eru margvíslegar, þar með talið félagslegar, efnahagslegar, menningarlegar, pólitískar og trúarlegar. Dæmi um kynbundið ofbeldi er heimilisofbeldi, misnotkun, ofbeldi á meðgöngu, kynferðislegt ofbeldi kvenna, menningarlegt kynferðisofbeldi og fjárhagslegt ofbeldi.


2016

Konur af erlendum uppruna á Íslandi: Menntun, atvinnumöguleikar og félagsleg þátttaka – Vísir

Konur sem eru erlendir ríkisborgarar á Íslandi eru nú tæplega 12 þúsund samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Þetta þýðir 12 þúsund einstaklingar 12 þúsund einstakar sögur. En hverjar eru þessar konur? Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi (W.O.M.E.N.

2015

Ofbeldi gegn konum verði tekið alvarlega

Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfin, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Stígamót og W.O.M.E.N. – Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi fordæma ofbeldi gegn öllum einstaklingum og sérstaklega þeim sem eru í viðkvæmri stöðu félagslega, og hvetja yfirvöld til að taka ofbeldi gegn konum alvarlega og styrkja lög um nálgunarbann.

Calls to Strengthen Restraining Order Law

It is increasingly important to for Iceland to give restraining order laws sharper teeth, as well as strengthening laws preventing people being thrown out of home by partners or other housemates, according to seven organizations that delivered a critical report to the Ministry for the Interior this week.

2014

Samtök kvenna af erlendum uppruna fengu jafnréttisviðurkenningu – Vísir

Eygló Harðardóttir ráðherra jafnréttismála veitti í gær Samtökum kvenna af erlendum uppruna og Orkuveitu Reykjavíkur jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs. Viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum. Annarsvegar til fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunnar og hinsvegar til einstaklings, hóps eða félagasamtaka. Óvenju margar tilnefningar til jafnréttisviðurkenningarinnar bárust í ár og ljóst að víða í samfélaginu er unnið markvisst að auknu jafnrétti.

Óvenju margar tilnefningar til jafnréttirviðurkenningar – Vísir

Samtök kvenna af erlendum uppruna og Orkuveita Reykjavíkur hlutu í gær jafnréttisviðurkenninguna fyrir árið 2013 sem Eygló Harðardóttir ráðherra jafnréttismála veitti. Eygló Harðardóttir flutti ávarp við afhendingu viðurkenninganna og ræddi meðal annars um mikilvægi þess að vinna að jafnrétti á öllum sviðum.

W.O.M.E.N. – Samtök kvenna af erlendum uppruna – Efling stéttarfélag

Jafnrétti snýst um fleira en jafnrétti kynjannaMarkmið W.OM.E.N. in Iceland er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins og eru Samtökin opin öllum konum af erlendum uppruna sem búsettar eru á Íslandi, segir Anna Katarzyna (Ania) Wozniczka, formaður.

Ókeypis leiklistarnámskeið W.O.M.E.N. – Vísir

Aude Busson er ein af leiðbeinendum á ókeypis leiklistarnámskeiði í Söguhring kvenna á Bókasafninu í Gerðubergi. Leiklistarnámskeiðið er samstarfsverkefni W.O.M.E.N – Samtaka kvenna af erlendum uppruna og Borgarbókasafnsins. Námskeiðið verður haldið hálfsmánaðarlega á sunnudögum klukkan 13:00-16:00. „Þetta er fyrir útlenskar konur og líka íslenskar,” segir Aude.

2013

„Höfum líka skoðun á Gálgahrauni”

Ýmislegt hefur breyst á þeim 10 árum sem liðin eru frá því að Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð,nú er t.d. algengara að hópurinn viðri skoðanir á málum sem ekki eru tengd innflytjendamálum. Helstu verkefnin eru þó enn tengd félagslegum vandamálum og að vinna gegn staðalmyndum.

2012

Spotkanie kobiet „Women Story Circle” * ICELAND NEWS

W październiku Biblioteka Miejska z Reykajviku będzie organizowała pierwszy „Festiwal Czytania”, który ma na celu promowanie czytania książek wśród dzieci i młodzieży. W związku z tym Stowarzyszenie „Women in Iceland” podczas spotkania „Women Story Circle” zachęca kobiety różnych narodowości do wspólnego czytania książek oraz opowiadania o nich.

2010

Konur styðji útlendar starfssystur – Vísir

„Ég bið íslenskar konur um að styðja erlendar samstarfskonur sínar og hvetja þær á Kvennafrídaginn,” segir Sabine Leskopf, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Kvennafrídagurinn er í dag. Þá hyggjast konur ganga út af vinnustöðum sínum klukkan 14.25 til að minna á sameiginleg baráttumál sín.

2007

Styrkja ímynd erlendra kvenna á Íslandi

Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur – hilduredda@bladid.net Samtök kvenna af erlendum uppruna eru frjáls félagasamtök og voru stofnuð á kvennafrídeginum 24. október árið 2003, en í þeim eru konur frá öllum heimshornum sem eiga það eitt sameiginlegt að búa og starfa á Íslandi.

2005

Áskorun stjórnar Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi til hæstvirts Alþingis

Stjórn Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi skorar á Alþingi að tryggja áfram fjármagn til reksturs Mannréttindaskrifstofu Íslands með beinu föstu framlagi á fjárlögum. Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur verið óháður umsagnaraðili og álitsgjafi ýmissa álitamála er snerta mannréttindi og hefur starf hennar verið óháð samtökum og stofnunum.

2003

Samtök kvenna af erlendum uppruna stofnuð

Samtök kvenna af erlendum uppruna voru stofnuð hér á landi í gær. Alls sóttu um 70 manns stofnfund á Hallveigarstöðum í Reykjavík, húsakynnum Kvenréttindafélags Íslands, og þar af um 40 konur af ýmsum þjóðernum. Samtökunum er ætlað að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvennanna eina rödd.


Do you want to support us?