Lög Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

 

  1. gr.

Samtökin heita Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Samtökin starfa á landsvísu. Heimili þeirra og varnarþing eru í Reykjavík.

 

  1. gr.

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi vinna samkvæmt stefnuskrá, sem er fylgirit með lögum þessum.

 

  1. gr.

Íslenska er opinbert tungumál Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.

 

  1. gr.

Meðlimir samtakanna geta orðið erlendar konur, búsettar á Íslandi, óháð ríkisfangi þeirra. Með erlendar konur er átt við konur sem eru með annað eða báðar foreldra af erlendum uppruna óháð fæðingarstað kvennanna.

 

Senda skal stjórn samtakanna skriflega umsókn um inngöngu í samtökin

  1. gr.

Félagsgjöld einstaklinga ákveður aðalfundur. Gjalddagi árgjalda er 1. janúar ár hvert.

 

  1. gr.

Aðalfundur kýs sjö konur í stjórn með málfrelsi, tillögurétt og kosningarétt. Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi í kjölfar kosninganna.
Aðalfundur kýs allt að sjö áheyrna fulltrúa, með málfrelsi og tillögurétt, til setu á öllum stjórnarfundum samtakanna. Ef stjórnarmaður forfallast skal áheyrnarfulltrúi taka sæti hans. Ef ekki er hægt að fylla í sæti í stjórn vegna forfalla skal auglýsa stöðuna á vefsíðum samtakanna og kosið verður í stöðuna á næstu aðalfundi.

Formaður og stjórn hafa umboð til að álykta í nafni samtakanna enda sé ályktunin í samræmi við grundvallarmarkmið þeirra.

 

  1. gr.

Aðalfund skal halda fyrir 30. nóvember ár hvert.

Á aðalfundi er samþykkt starfsáætlun til eins árs.

Á aðalfundi er kosið í stjórn á tveggja ára fresti.

Allir skráðir félagar hafa rétt til setu og atkvæðisrétt á aðalfundi.

Stjórnin ber ábyrgð á fjárreiðum samtakanna.

  1. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
    1. Fundur settur.
    2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
    3. Skýrsla stjórnaráðs fyrir liðið starfsár.
    4. Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
    5. Kosning í stjórn.
    6. Kosning á skoðunaraðila reikninga.
    7. Ákvörðun félagsgjalda.
    8. Lagabreytingar.
    9. Tillaga stjórnar um starfsáætlun næsta starfsárs.
    10. Önnur mál.
    11. Fundarslit.

Aðalfundur telst löglega boðaður ef fundarboð er sent með tölvupósti á félaga með a.m.k. tíu daga fyrirvara.

Reikningsár félagsins er 20. október til 19. október.

 

  1. gr.

Tillögur um breytingar á lögum ber stjórnin undir félaga á aðalfundinum. Aðalfundurinn samþykkir breytingar með 2/3 atkvæða.

 

  1. gr.

Félaginu verður einungis slitið á aðalfundi með 2/3 hluta fullgildra atkvæða og skal slíkrar tillögu vera getið í fundarboði. Verði félaginu slitið á lögmætan hátt skal eignum þess varið til góðgerðamála sem stjórn ákveður.

You may also like

Discover more from W.O.M.E.N. in Iceland

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading