Atvinna og félagsleg mál Fréttir Kynbundið ofbeldi Ræður Samstarf

Ásamt 22 öðrum samtökum, lýsir W.O.M.E.N. þungum áhyggjum af alvarlegri stöðu fólks á flótta sem hefur verið vísað úr allri þjónustu og bauð ráð­herra á fund

SAMEIGINLEG YFIRLÝSING UM ÞUNGAR ÁHYGGJUR AF ALVARLEGRI STÖÐU FÓLKS Á FLÓTTA

Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.

Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.

Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.

Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til neyðarfundar nk miðvikudag 23. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.

Reykjavík, 18. ágúst 2023

Barnaheill

Biskup Íslands

FTA – félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd

Geðhjálp

GETA hjálparsamtök

Hjálparstarf kirkjunnar 

Hjálpræðisherinn á Íslandi

Íslandsdeild Amnesty International

Kvenréttindafélag Íslands

Mannréttindaskrifstofa Íslands

No Borders

Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunnni

Rauði krossinn á Íslandi

Réttur barna á flótta

Samhjálp

Samtökin ’78

Solaris

Stígamót

UNICEF á Íslandi

UN Women á Íslandi

W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna

Þroskahjálp

ÖBÍ – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi

You may also like