Að vakna eftir til lífsins út frá COVID lokun er hvatniingu fyrir okkur í Söguhingur kvenna til að vinna úti í núna í vor og sumar!

Við í Söguhringur kvenna erum mjög spenntar að tilkynna samstarf okkar við Norræna húsið í Reykjavík. Við ætlum að hefja garðverkefni fyrir konur af erlendum uppruna! NH hefur verið svo frábær að bjóða okkar velkomin og veita okkur tækifæri til að rækta grænmeti, blóm og kryddjurtir í gróðurhúsinu og garðbeðunum úti allt vorið og sumarið.

Það er okkur sönn ánægja að kynna hér að kynna nýja verkefnið World Garden / Heimsyndisgarður í samvinnu við Norrænna húsið. www.nordichouse.is Heimsyndisgarður fær afnot af gróðurhúsi og garðbeðum frá Norrænna húsinu til að rækta kryddjurtir, blóm og grænmeti í allt sumar. 

Garðyrkjufræðingurinn Jóhanna Borghildur Magnúsdóttir mun leiða okkur í gegnum ræktunarævintýri okkar og mun kenna okkur að forrækta, planta og  um áburðagjöf.  Fyrsta samkoma okkar verður  þann 25. apríl frá kl. 14 til kl. 17. Við munum hittast í gróðurhúsinu og læra um forræktun. Við munum svo hittast aftur 16. maí og 30. maí til að planta græðlingum okkar í útibeð og sömuleiðis að sá beint úti. 

Upplýsingar varðandi almennings samgöngur er á heimasíðu Norrænna hússins. Bæði strætó nr. 15 og 14 stoppa rétt hjá. 

Endilega skráið ykkur hér og deilið því hvaða plöntur, kryddjurtir eða blóm ykkur langar að rækta. https://forms.gle/GzrroD59Zt67zjbN7

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á greenhouse@womeniniceland.is

Fyrir hönd Samtök kvenna af erlendum uppruna og Söguhring kvenna

Hye Joung Park og Lilianne van Vorstenbosch

You may also like